Girls Just Wanna Have Fun
Annað
Gullið okkar
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1644 dögum
Myndasöfn
11.09.2007 16:06:00 / Signý

:-)

Halló halló, held að það sé kominn tími á að skrifa svo sem eins og eina færslu:lol:

Þá er litli kútur orðinn 1 mánaða gamall í dag og stækkar hratt. Þetta er allt búið að ganga alveg rosalega vel og hann er alveg yndislegur *stolt*:D Nú erum við skötuhjú í fæðingarorlofi þó að pabbinn sé nú á fullu að læra líka(duglegur) og lífið snýst nú um þennan nýja einstakling sem maður ber nú ábyrgð á. Held að það sé ekki til neitt betra en þetta nýja hlutverk: Foreldri:haha:

Annars er bara voða lítið að frétta enda kemst voða lítið annað að hjá manni þessa dagana;)

Þangað til næst

knús

shj


» 2 hafa sagt sína skoðun

04.09.2007 16:09:27 / Signý

Litli kútur

Hæhæ,

Þá er litli kútur kominn með heimasíðu www.litlaljon.barnaland.is

Síðan er læst en hægt að senda mér tölvupóst til að fá lykilorðið:D

signyhelga@hotmail.com

knús

shj


» 1 hafa sagt sína skoðun

06.08.2007 00:33:06 / Signý

Verslunarmannahelgin 2007

 ...er að líða undir lok.

Með þeim rólegri verslunarmannahelgum, og já í rauninni bara með rólegri helgum yfir höfuð, sem ég hef upplifað:lol: Nú bíður maður bara spenntur með bumbuna út í loftið eftir að litla gullið okkar láti sjá sig.  Er samt ekkert orðin óþolinmóð, bara tilbúin í fjörið;) Annars veit maður aldrei, kannski lætur litla krílið bíða eftir sér fram yfir settan dag sem er á næsta laugardag EN ef það er svona fljótfært og drífandi eins og mamma sín þá gerist það nú ekki!!

Var að hlusta á Brekkusönginn úr Eyjum í beinni útsendingu á Rás 2 áðan og men hvað Árni er faaaalskur. Stundum vissi maður bara ekkert hvaða lag hann var að syngja, er aðeins betri á gítarnum en í söngnum og ætti kannski að íhuga að fá sér aðstoðarmann í honum:haha: En greinilega góð stemning þarna og eins og alltaf á þessum degi þá hugsa ég með mér að það væri nú ekki leiðinlegt að vera í Eyjum. En svo á morgun þá er maður úber feginn að vera ekki skelþunnur að sigla með Herjólfi tilbaka muhahahahaha:lol:

En þangað til næst

knús

shj


» 12 hafa sagt sína skoðun

16.07.2007 14:59:19 / Signý

Sól og sumar

Jæja þá erum við flutt og búið að vera nóg að gera. Hrikalega gott að vera búinn að þessu en auðvitað tekur smá tíma að venjast að vera kominn úr dekrinu hjá mömmu og pabba:lol: Ætli maður verði ekki oft heima í heimsókn...er einmitt þar núna þar sem að það er ekki lúxus eins og internetið komið á nýja heimilið.

Annars er allt gott að frétta, fyrsti dagur án vinnu í dag. Er samt sagt hætt að vinna í bili, soldið skrýtin en góð tilfinning. Nú fer maður að einbeita sér að öðrum yndislegum hlutum. Tæpar 4 vikur í settan dag og í raun er maður viðbúinn hvenær sem er, vona bara að við þurfum ekki að bíða langt fram yfir settan dag: 11.ágúst:D

Og hvað með veðrið, þetta er nottla bara æðislegt8)

Bið að heilsa í bil

knús

shj


» 6 hafa sagt sína skoðun

25.06.2007 18:39:45 / Signý

Af mér...

 

.... er allt gott að frétta:D

Litla kríli dafnar vel í bumbunni og mamman hefur ekki yfir miklu að kvarta. Fáum íbúðina okkar afhenta næstu helgi og þá verður farið í að mála, gera og græja. Eigum líka eftir að kaupa flest í búið en þetta kemur allt með kalda vatninu. Verðum alla vega búin að koma okkur að mestu fyrir þegar krílið fæðist;)

Sumarið er víst komið og ágætisveður, ég er samt ekki nægjusöm með þetta og heimta enn betra veður...sól og hita takk -rok8) Fórum í bústað um helgina og það var mjööög næs, fengum góða gesti og slöppuðum af. Svo á gamla stórafmæli í dag, 50 ára takk fyrir og held að hún sé bara hæstánægð með það. Passar líka vel saman að verða fimmtug og amma á sama árinu:lol:

En bið að heilsa í bili

knús

shj


» 7 hafa sagt sína skoðun

08.06.2007 15:38:00 / Signý

Jæja þá erum við loksins...

 

....orðnir stoltir íbúðareigendur:haha: Búin að skrifa undir og alles og formlega búin að steypa okkur í þvílíkar skuldir eins og flestir Íslendingar;) Og það er meira að segja mjög góð tilfinning. Fáum afhent í lok mánaðarins og getum verið með allt reddí þegar litla krílið okkar kemur og ég get aðeins róað mig niður haha:lol:

Annars er allt gott bara að frétta, helgin framundan og vonandi aðeins betra veður en hefur verið undanfarið8)

Góða helgi

knús

shj


» 6 hafa sagt sína skoðun

21.05.2007 14:53:04 / Signý

Sitt af hvoru

Þá er ég tilbúin til að skrifa aðeins hingað inn.... maður þarf alveg að vera í sérstöku stuði til þess sko;) Líka þar sem að ég er ekki búin að gera barnalandssíðu(sorrí Solla mín) þá er nú ráð að láta aðeins í sér heyra hér. Hef ekki hugsað mér heldur að gera barnalandssíðu fyrr en krílið er komið:lol:

Annars er allt gott að frétta. Nema kannski fyrir utan þessi blessuðu íbúðamál. Erujm búin að bjóða í tvær íbúðir en fengum hvoruga:cry: Fyrri langaði mig svooo í og var frekar súr yfir að hafa ekki fengið hana. Það var einhver %&$#$%& kall sem var að bjóða í hana á móti okkur og þetta var komið í yfirboð og læti þannig við bara gáfumst upp. Svo buðu við í aðra íbúð sem okkur leist mjög vel á en þau hættu svo bara við að selja:( Þannig ég bíð enn eftir draumaíbúðinni, soldið stressandi að vera ekki kominn með íbúð með bumbuna út í loftið;)

Hef svo sem ekki yfir öðru að kvarta. Óléttan gengur svaka vel og tíminn líður mjööög hratt, þetta verðu búið áður en maður veit af. Er sett 11.ágúst og bíð spennt:D

Setti inn hérna fyrir ofan hvernig litla kríli er statt í lífinu:lol:

En bið að heilsa bara í bili

knús

shj


» 4 hafa sagt sína skoðun

29.04.2007 16:47:06 / Signý

Sunnudagur

Hef ekkert að gera...

þannig að þá er best að smella einhverju hérna inn, er líka búin að vera í tölvunni í allan dag að skoða hitt og þetta á hinum góða veraldarvef. Þvílíkur tímaþjófur;)

Ástæðurnar fyrir því að ég hef ekkert merkilegt að gera geta verið margar:

  • það er sunnudagur
  • hinn almenni námsmaður er í prófum og núna í fyrsta skipti er ég það ekki
  • ég er ekki þunn(og hef ekki verið lengi)
  • ég er í frí og Jóhann er inni í herbergi að læra og pabbi er sofandi í sófanum
  • mamma er ekki heima(frekar en vanalega)
  • ég nenni ekki út
  • ég á ekki íbúð(og get þar af leiðandi ekki dundað mér í henni)

Annars ef ég hugsa um það gæti ég alveg gert margt og mikið...það er bara einhver sunnudagur í mér:haha:

Allt gott að frétta bara. Er að reyna að fá eigið þak yfir höfuðið. Hef lært á þeirri reynslu að mér er mjög illa við brunabótamat. Er það grín hvað þessi lánamál eru flókin. Ef einhver lumar á góðum ráðum má sá hinn sami hafa samband við mig:lol:

þar til næst

 

knús

shj


» 4 hafa sagt sína skoðun

19.04.2007 17:31:43 / Signý

Gleðilegt sumar


» 15 hafa sagt sína skoðun

07.04.2007 18:22:17 / Signý

Gleðilega páska ungarnir mínir

Í tilefni páskanna og þess að ég á 4 daga páskafrí( sem hefur ekki gerst síðan hvað....1999) þá ætla ég að rita nokkur orð.

Páskarnir í ár eru óvenju rólegir hér á bæ sem má tengja stækkandi bumbu, ekkert sukk og svínarí að þessu sinni eins og svo oft um páskana:lol: Fyrir 3 árum var singúlklúbburinn stofnaður um páskana en það hefur nú margt runnið til sjávar síðan þá, og helmingur klúbbsins búinn að hálfklóna sig;)

Annars er voða ljúft að vera í fríi, lítið gert annað en að borða og jú hitta fjölskyldu og vini sem er nú nauðsynlegt að gera. Svo er óðum að styttast í London ferð fjölskyldunnar á Reynimel, förum á næsta miðvikudag. Gamli á afmæli og verður margt brallað í tilefni þess og svo verður auðvitað verslað slatta, þarf að fara að búa til lista því ég veit ekki alveg hvað ég þarf að kaupa:)

En vona að þið hafið það sem allra best

Gleðilega páska


» 2 hafa sagt sína skoðun

22.03.2007 20:23:11 / Signý

jamm

Æ ég er svoooo löt.....að blogga:lol:

Get samt alveg verið löt á öðrum sviðum lífsins líka, en sem betur fer ekki mjög oft. Þoli ekki leti lengur, sérstaklega hjá öðrum... Leti hjá öðrum þýðir nefnilega oft að það að gera hlutina lendir á sjálfum manni og gerir ekki góða hluti fyrir skapið, sérstaklega ekki þegar það er tæpt fyrir af völdum hormóna;)

Annars er bara fínt að frétta, páskarnir framundan og Londonferð fjölskyldunnar vikuna eftir þá. Er byrjuð að undirbúa mig andlega undir það að vera dugleg að versla, kjéllingin ætlar sko að reyna að gera góð kaup8) Ætli maður versli ekki minnst á sjálfan sig, en það er ekki málið.

Aðal áhugi minn þessa dagana beinist að íbúðakaupum, og er á fullu að skoða hinar ýmsu gerðir íbúða á netinu...er búin að sjá nokkrar álitlegar og spurning hvort að maður fari ekki og skoði eitthvað af þeim og svo bara KAUPA:lol: Veit ekkert hvar í borginni við endum. En home is where you're heart is:haha:

Jæja er þetta ekki gott í bili, bara best að hafa þetta stutt og laggott

Læt kannski bara heyra í mér eftir helgi:D

knús

shj


» 10 hafa sagt sína skoðun

28.02.2007 14:34:37 / Signý

Jæja undur og stórmerki gerast enn!

Þá er runninn upp síðasti dagur þessa febrúar mánaðar, ótrúlegt en satt þá hefur hann liðið undur hratt8| Ótrúlegt hvað það munar líka um þessa örfáu daga sem febrúar er styttri en hinir mánuðirnir..

En svo gerðust þau stórtíðindi að elsku Þóra mín eignaðist litla sæta stelpu í gærnótt, allt gekk vel að sögn nýbakaðra foreldra. Fór og kíkti á litlu fjölskylduna upp á Hreiður í gær, gat nottla ekki annað;) Og stelpan er bara algjört yndi, með mikið hár og bollukinnar:lol:

Annars eftir að hafa sagt þetta þá hef ég ekkert merkilegt að segja;)

bis ?

knús

shj


» 5 hafa sagt sína skoðun

15.02.2007 19:08:17 / Signý

Valentino

Þá er helmingurinn af febrúar búinn og alltaf styttist í vorið...apríl er svona nokkurn veginn upphitun fyrir vorið og maí upphitun fyrir sumarið:lol: Páskarnir eru fyrstu vikuna í apríl og ættu að stytta biðina eitthvað. Svo verður pabbi gamli fimmtugur í apríl og ætlar að bjóða okkur familíunni til London í tilefni þess:D Hef aldrei komið til London, eina sem ég veit er að ég ætti að geta verslað eitthvað þar. Alveg sama þótt að það sé ekkert ódýrt, maður hefur alla vega úrval þar annað en hér. Hef aldrei vitað annað eins hallæri á fötum hérlendis og núna undir lok útsalanna og hvað er það að hafa þessar útsölur endalaust. Það eru ekki allir sem vilja bara kaupa drasl á útsölum...kannski hægt að finna eitthvað í byrjun útsalna og um að gera til að spara peninginn. EN þegar þú ert farinn að kaupa hluti á útsölum bara til að kaupa þá af því að þeir eru ódýrir þá ertu ekki að græða;)

En alla vega

ummm er ekkert búin að vera að gera neitt ofboðslega mikið undanfarið, jú vinna nottla og alltaf dugleg að horfa á sjónvarpið og borða:lol: Hef það bara gott sem sagt...

Valentínusardagurinn í gær, þeir sem þekkja mig vita að ég er alveg laus við það að vera væmin...get samt alveg fellt tár á vel völdum kvikmyndaaugnablikum og við vissar aðstæður...en annars nei. En við skötuhjúin fórum nú og fengum okkur pitsu á Eldsmiðjunni í tilefni dagsins, svona til að sýna lit;) Nota bene samt...þó að ég segi að ég sé ekki væmin þá er ég ekki alveg ónæm fyrir svona surprise og svona, kann að meta það en það þarf ekkert endilega að vera á sérstökum dögum. Það er líka munur á því að vera væminn og sætur:lol:

Æ ég er farin að bulla

þangað til næst

knús

shj


» 5 hafa sagt sína skoðun

03.02.2007 21:40:30 / Signý

Black hole sun, won't you come and wash away the rain

Oooo og vantar svo sól, er svo hvít að annað eins hefur aldrei sést. Veit að einhver hafði samband við heimsmetabók guinnes út af þessu í vikunni...sjáum hvað setur, kannski verð ég fræg8)

Annars er laugardagskvöld og maður er bara heima í rólegheitunum eins og venjulega. Spurning um að skella sér útí ísbúð, eina vandamálið er röðin sem nær alltaf lengst út á götu. Fólk virðist ekki geta myndað röð innan búðarinnar þó að það sé nóg pláss. Skítt með þetta á sumrin í góðu veðri en hver nennir að standa úti í röð eftir ís í frosti og hríð....8|

Ó well,

þangað til næst

knús

shj


» 4 hafa sagt sína skoðun

01.02.2007 22:53:51 / Signý

HM

Nú vita greyið danirnir hvernig okkur leið á þriðjudaginn.... Ekkert smá spennandi leikurinn áðan við Pólverja. Reyndar var Frakkland-Þýskaland líka svona tæpur, ætli það hafi ekki hjálpað þjóðverjunum soldið að vera á heimavelli. Flest liðin sem komust í 8-liða úrslit eru mjög jöfn og meira heppni en annað hverjir eru að komast áfram. Þetta er búin að vera ekkert smá skemmtileg keppni, og ég er strax farin að hlakka til EM á næsta ári;) Þá tökum við þetta:haha:

Annars er bara allt gott að frétta. Komin í þriggja daga helgarfrí, sem er mjög næs því það er svona yfirhöfuð brjálað að gera í vinnunni. Ekkert sérstakt planað svo sem nema að hafa það gott og horfa á HM.

Svo er Desperate Housewives byrjað aftur:D Uss finnst það ekki leiðinlegt. Þá fer hann aftur í hóp skylduáhorfsþátta svo sem Grey´s Anatomy, ER og Lost(er reyndar frekar ekki að skilja þá núna). Það er nefnilega alveg nauðsynlegt að hafa eitthvað að horfa á í sjónvarpinu þegar maður þarf ekki lengur að pæla í skólanum8) Eigum við svo eitthvað að ræða hvað X-factor er bókstaflega pínlegur þáttur....8| Kannski á hann eitthvað eftir að skána en úfff hvað mér fannst erfitt að horfa á þetta á föstudaginn. Halla var ekki alveg að gera sig, Ellý á gelgjunni og hinir bara vissu ekkert hvernig þeir áttu að vera. Ætla nú ekki að dæma of hart, kannski voru þetta bara miklir byrjunarerfiðleikar;)

Þangað til næst

knús

shj


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 12